Edwin „Buzz“ Aldrin | |
![]() Buzz Aldrin fyrir Apollo 11 ferðina. | |
Fæddur | 20. janúar 1930 Glen Ridge, New Jersey, Bandaríkjunum |
---|---|
Tími í geimnum | 12 dagar, 1 klukkustundir og 52 mínútur |
Verkefni | Gemini 12 og Apollo 11 |
![]() ![]() |
Buzz Aldrin (fæddur 20. janúar 1930 sem Edwin Aldrin) er fyrrverandi bandarískur geimfari og orrustuflugmaður. Hann er frægastur fyrir að hafa verið annar maðurinn til að stíga fæti á tunglið á eftir Neil Armstrong. Það gerði hann í annarri og síðustu geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Armstrong tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan. Hann breytti nafni sínu formlega í Buzz árið 1988.
Bósi Ljósár úr teiknimyndinni Leikfangasaga heitir eftir Buzz Aldrin.