Edmund Husserl

Edmund Gustav Albrecht Husserl
Edmund Gustav Albrecht Husserl
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. apríl 1859, ProstějovTékkóslóvakíu, þá í Austurríki-Ungverjalandi)
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilHeimspeki 20. aldar
Skóli/hefðMeginlandsheimspeki, fyrirbærafræði
Helstu viðfangsefniþekkingarfræði, stærðfræði

Edmund Gustav Albrecht Husserl (8. apríl 1859, Prostějov26. apríl 1938, Freiburg) var þýskur heimspekingur, sem er þekktur sem „faðir“ fyrirbærafræðinnar.

Husserl fæddist inn í gyðingafjölskyldu í Prostějov (Prossnitz) í Moravíu í Tékkóslóvakíu (sem var þá hluti af Austurríki-Ungverjalandi). Hann var nemandi Franz Brentano og Carl Stumpf en hafði síðar mikil áhrif á Edith Stein, Eugen Fink, Martin Heidegger, Jean-Paul Sartre og Maurice Merleau-Ponty meðal annarra. Árið 1887 gerðist hann kristinn mótmælandi. Hann kenndi heimspeki í Halle frá 1887, þá í Göttingen sem prófessor frá 1901 og að lokum í Freiburg im Breisgau frá 1916 til 1928 þegar hann settist í helgan stein. Hann hélt þó áfram að fást við og skrifa um heimspeki og nota bókasafnið í Freiburg þar til honum var meinað að gera það vegna gyðinglegs uppruna síns.


From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Nelliwinne