Franklin Pierce (23. nóvember 1804 – 8. október 1869) var bandarískur stjórnmálamaður og 14. forseti Bandaríkjana, en hann þjónaði því embætti frá 1853 til 1857. Hann er eini bandaríski forsetinn sem kemur frá New Hampshire og var fyrsti forsetinn sem fæddist á 19. öld. Með útliti sínu og viðkunnalega persónuleika aflaði hann sér margra vina en hann varð fyrir áföllum í einkalífinu og tók þar af leiðandi ákvarðanir í embætti sem voru harðlega gagnrýndar. Vegna þessa hefur Pierce verið talinn einn af verstu forsetum Bandaríkjanna.