Google Translate

Google Translate er ókeypis vélþýðingaforrit sem var þróað af Google og hægt er að nota til að þýða texta, tal, myndir, vefsíður eða myndskeið af einu tungumáli yfir á annað. Forritið er með vefviðmóti, farsímaforrit fyrir Android og iOS og innbót sem hönnuðir geta notað til að smíða vafraviðbætur og hugbúnaðarforrit.

Google Translate var hleypt af stokkunum í apríl 2006. Þýðingarvélin notaðist við tölfræðiþýðingu út frá stóru þýðingaminni.[1] Árið 2016 var þýðingarvélinni breytt þannig að eftir það notast hún við tauganetsþýðingu með djúpnámi til að þýða heilar setningar í stað orða og setningarhluta áður.[2]

Google Translate styður nær 250 tungumál, þar með talið íslensku, og eru daglegir notendur mörg hundruð milljónir.

  1. Sommerlad, Joe (19 júní 2018). „Google Translate: How does the search giant's multilingual interpreter actually work?“. The Independent. Afrit af uppruna á 2 nóvember 2020. Sótt 28 nóvember 2018.
  2. McGuire, Nick; Argondizzo, Peter (26 júlí 2018). „How accurate is Google Translate in 2018?“. ARGO Translation. Afrit af uppruna á 25 janúar 2021. Sótt 29 nóvember 2018.

From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Nelliwinne