Helsinki | |
---|---|
![]() Lútherska dómkirkjan í Helsinki | |
Hnit: 60°10′15″N 24°56′15″A / 60.17083°N 24.93750°A | |
Land | ![]() |
Hérað | Uusimaa |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Juhana Vartiainen (KOK) |
Flatarmál | |
• Borg | 715,48 km2 |
• Land | 214,42 km2 |
• Vatn | 501,74 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 26 m |
Mannfjöldi (2023) | |
• Borg | 674.963 |
• Þéttleiki | 3.147,85/km2 |
Tímabelti | UTC+2 |
• Sumartími | UTC+3 |
Svæðisnúmer | +358-9 |
Vefsíða | hel |
Helsinki (á finnsku; ⓘ á sænsku) er höfuðborg Finnlands og jafnframt stærsta borg landsins með yfir 650 þúsund íbúa (2019). Á öllu Helsinkisvæðinu búa um 1,3 milljónir íbúa. Helsinki er helsta miðstöð stjórnmála, menningar og vísinda í Finnlandi.
Helsinki eða Helsingfors, eins og bærinn nefndist upphaflega, var stofnaður 1550 af Gústaf Vasa, Svíakonungi, sem keppinautur hansakaupstaðarins Tallinn í núverandi Eistlandi. Það var þó ekki fyrr en eftir að Finnland féll í hendur Rússum 1808 og varð að finnska stórfurstadæminu 1809 sem vegur Helsinki fór að dafna. Sem þátt í viðleitni sinni að minnka áhrif sænskrar menningar og tengsla við Svíþjóð ákvað Alexander I, Rússlandskeisari og stórfursti Finnlands, að flytja höfuðborgina frá Turku (Åbo) til Helsinki árið 1812.
Við lok 19. aldar hafði meirihluti íbúa Helsinki sænsku að móðurmáli en vegna mikils innflutnings finnskumælandi fólks til borgarinnar hafa hlutföllin snúist við og nú hefur mikill meirihluti borgarbúa finnsku að móðurmáli.
Helstu staðreyndir um Helsinki: