Hvalsey

Bærinn og kirkjan í Hvalseyjarfirði (í seinni tíma heimildum er kirkjustaðurinn nefndur Hvalsey eftir styttingu í lýsingu af brúðkaupinu 1408) er einn af þekktari stöðum frá tímum norrænna manna á Grænlandi. Bæði er að þar eru mestu rústir uppistandandi frá þessum tímum og að síðustu rituðu heimildir frá norrænu Grænlendingunum fjalla um þennan stað. Í Landnámabók er Þorkell farserkur nefndur sem landnámsmaður þar, einnig er sagt að hann hafi verið heygður í túninu og gengið aftur til að fylgjast með afkomendum sínum. Hvalseyjarfjörður var í miðri Eystribyggð ekki langt frá Brattahlíð og biskupssetrinu á Görðum.

í kirkjulýsingu Ívars Bárðarsonar er bærinn sagður norsk konungsjörð og heiti Þjóðhildarstaðir en kirkjan Hvalseyjarfjarðarkirkja.

Hvalseyjarfjörður er í næsta nágrenni við Qaqortoq, höfuðbyggð Suður-Grænlands, og nefnist nú Qaqortukulooq, fjörðurinn sjálfur Qaqortup Imaa og eyjan Hvalsey heitir Arpatsivik.


From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Nelliwinne