iOS (þekkt sem iPhone OS fyrir júní 2010) er stýrikerfi frá Apple fyrir fartæki Apple, snjallsímann iPhone og spjaldtölvuna (e. tablet) iPad (seinna kom nafnabreyting/afbrigði af iOS fyrir iPad sem heitir iPadOS). iOS kom fyrst út á iPhone en er nú líka fáanlegt fyrir iPod touch. Apple gefur ekki leyfi til að nota stýrikerfið á öðrum tækjum. Með netversluninni App Store er hægt að hlaða forritum niður í þessi tæki og 2020 voru til 1.8 milljón forrit, aukning frá rúmlega 500.000 forritum, til sölu í versluninni 2011.[1] Á síðasta ársfjórðungi 2010 var markaðsdeild iOS á alþjóðlega snjallsímastýrikerfismarkaðinum 16%, í þriðja sæti á eftir Android frá Google og Symbian frá Nokia, ef miðað er við sölu á tækjum sem nota stýrikerfin,[2] en nú er iOS í öðru sæti á eftir Android.
Notendaviðmót iOS er byggt á beinum samskiptum við fjölsnertiskjá. Notandinn stjórnar tækinu með fingrahreyfingum og lyklaborði á skjá (líka er hægt að nota viðtengt lyklaborð en kerfið er ekki hannað fyrir mús). Tækið bregst einnig við sé tækinu hallað eða snúið. Sé tækinu, til dæmis, snúið um 90 gráður þá heldur mynd á skjá áfram að snúa upp. iOS var byggt á grunnhluta Mac OS X stýrikerfisins (sem nú heitir macOS), sem var gert fyrir borðtölvur og að einhverju leyti eru forritaskil því lík (t.d. Core Foundation og Foundation Kit en notar t.d. Cocoa Touch en ekki Cocoa úr macOS) en ekki nógu lík til að forrit gerð fyrir macOS virði á iOS.