John D. Rockefeller | |
---|---|
![]() Rockefeller árið 1885. | |
Fæddur | 8. júlí 1839 |
Dáinn | 23. maí 1937 (97 ára) Casements-setri, Ormond Beach, Flórída, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Störf | Athafnamaður |
Flokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Laura Spelman (g. 1864; d. 1915) |
Börn | Elizabeth, Alice, Alta, Edith og John Jr. |
John Davison Rockefeller (8. júlí 1839 – 23. maí 1937) var bandarískur iðnrekandi og auðkýfingur. Hann stofnaði olíufyrirtækið Standard Oil (S.O.), sem á sínum tíma var stærsta olíufyrirtæki heims. Rockefeller gjörbylti bæði olíuiðnaðinum og fjárveitingum til góðgerðarmála. Ef tekið er tillit til gengisbreytinga og kaupmáttarsveiflu er hann oft talinn ríkasti maður sögunnar.[1][2][3][4]
Rockefeller settist í helgan stein árið 1897 og varði elliárunum í kerfisbundnar fjárveitingar til góðgerðarmála. Hann kom á fót menntastofnunum eins og Chicago-háskóla og Rockefeller-háskóla og ýmsum rannsóknarstofnunum, sem höfðu mikil áhrif á þróun læknisfræði og vísinda.
Rockefeller var alla tíð bindindismaður. Hann átti fjórar dætur og einn son.