Kvennalistinn

Kvennalistinn
Fylgi 4,9%1995
Formaður Enginn formaður
Stofnár 1983
Lagt niður 1999
Gekk í Samfylkinguna
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
kvenfrelsisstefna

Kvennalistinn (Samtök um kvennalista) var stjórnmálaflokkur á Íslandi sem starfaði frá 13. mars 1983 þar til árið 1999 þegar að hann sameinaðist Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi og Þjóðvaka þegar að flokkarnir stofnuðu Samfylkinguna. Forverar Kvennalistans voru Kvennaframboðin í Reykjavík og á Akureyri sem fengu fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum árið 1982. Kvennalistinn bauð fram til Alþingis í þremur kjördæmum vorið 1983. Listinn hlaut 5,5 % atkvæða og fékk þar með þrjár konur inn á þing. Í kosningunum 1987 fékk flokkurinn 10,1% atkvæða og sex konur inn á þing. Listinn tapaði einu sæti árið 1991, og náði aðeins þrem konum á þing árið 1995.


From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Nelliwinne