Lady Gaga | |
---|---|
![]() Lady Gaga á innsetningarathöfn Joe Biden árið 2021 | |
Fædd | Stefani Joanne Angelina Germanotta 28. mars 1986 |
Störf |
|
Ár virk | 2000–í dag |
Stofnun | |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Vefsíða | ladygaga |
Stefani Joanne Angelina Germanotta (f. 28. mars 1986), betur þekkt sem Lady Gaga, er bandarísk söngkona, lagahöfundur og leikkona. Hún er þekkt fyrir reglulega endursköpun á ímynd sinni og fjölhæfni sína í skemmtanaiðnaðinum.
Eftir að hafa skrifað undir samning við Interscope Records árið 2007 náði Gaga alþjóðlegri frægð með fyrstu breiðskífunni sinni, The Fame (2008), og endurútgáfu hennar, The Fame Monster (2009). Plöturnar innihéldu vinsælu smáskífurnar „Just Dance“, „Poker Face“, „Bad Romance“, „Telephone“ og „Alejandro“. Önnur stúdíóplata hennar, Born This Way (2011), kannaði rafrokk og teknópopp og seldist í meira en milljón eintökum í fyrstu vikunni. Titillag plötunnar sló metið yfir það lag sem seldist hraðast á iTunes Store, með yfir eina milljón niðurhala innan við viku. Í kjölfar þriðju plötu hennar, Artpop (2013), sem kannaði raftónlist, lagði hún áherslu á djass á plötunni Cheek to Cheek (2014) með Tony Bennett og á mjúkt rokk með plötunni Joanne (2016).
Gaga sneri sér að leiklist og vann verðlaun fyrir aðalhlutverkin sín í þáttunum American Horror Story: Hotel (2015–2016) og kvikmyndunum A Star Is Born (2018) og House of Gucci (2021). Framlög hennar til plötu tónlistarmyndarinnar innihalda smáskífuna „Shallow“ sem gerðu hana að fyrstu konu til að vinna Óskarsverðlaun, BAFTA-verðlaun, Golden Globe-verðlaun og Grammy-verðlaun á einu ári. Hún sneri aftur í danspoppið með sjöttu breiðskífu sinni, Chromatica (2020), sem innihélt smáskífuna „Rain on Me“. Árið 2021 gaf hún út aðra samstarfsplötu með Bennett, Love for Sale (2021), og gaf út vinsælu smáskífuna „Die with a Smile“ (2024), sem náði toppsæti vinsældalista.
Gaga er ein af söluhæsta tónlistarfólki heimsins, með um 170 milljón plötur seldar, og eina konan til að eiga fjórar smáskífur sem hafa selst í a.m.k. 10 milljónum eintaka á heimsvísu. Meðal verðlauna og viðurkenninga sem hún hlotið eru 14 Grammy-verðlaun, tvö Golden Globe-verðlaun, 18 MTV Video Music-verðlaun, verðlaun frá Frægðarhöll lagahöfunda og Council of Fashion Designers of America, auk viðurkenninga sem listamaður ársins (2010) og kona ársins (2015) hjá Billboard. Hún hefur einnig verið talin með í nokkrum listum Forbes og var í fjórða sæti Greatest Women in Music lista VH1 (2012). Time útnefndi hana sem eina af 100 áhrifamestu einstaklingum heimsins árin 2010 og 2019 og setti hana á All-Time 100 Fashion Icons lista þeirra. Góðgerðastörf hennar og aktívismi fjalla helst um geðheilbrigði og réttindi hinsegin fólks. Hún rekur eigin góðgerðarsamtök, Born This Way Foundation, sem styður við geðheilsu ungs fólks. Viðskiptastarfsemi hennar er meðal annars Haus Labs, vegan snyrtivörufyrirtæki sem kom á markað árið 2019.