Mehmed 2. (ottoman tyrkneska: محمد الثانى Meḥmed-i s̠ānī, tyrkneska: II. Mehmet), betur þekktur sem Mehmed sigursæli, var við völd í Ottómanaveldi frá árunum 1444 til 1446 og aftur frá 1451 til 1481. Mehmeds er minnst fyrir að hafa sigrað Konstantínópel sem er í dag Istanbúl. Þessi sigur á borginni batt enda á austrómverska keisaraveldið. Hann hélt landvinningum sínu áfram að því loknu og náði að leggja undir sig stór svæði í Suðaustur-Evrópu allt vestur að Bosníu. Hann er talinn vera einn af bestu herforingjum tímabilsins og lagði grunninn að útþenslu Ottómanaveldis.