Nuuk

Nuuk
Nuussuaq-hverfið í Nuuk, fjallið Sermitsiaq (1.210 m.) í bakgrunni
Nuussuaq-hverfið í Nuuk, fjallið Sermitsiaq (1.210 m.) í bakgrunni
Fáni Nuuk
Skjaldarmerki Nuuk
Nuuk-kort (OpenStreetMap)
Nuuk-kort (OpenStreetMap)
Nuuk er staðsett á Grænlandi
Nuuk
Nuuk
Staðsetning á Grænlandi
Hnit: 64°10′30″N 51°44′0″V / 64.17500°N 51.73333°V / 64.17500; -51.73333
Fullvalda ríkiDanmörk Konungsríkið Danmörk
Land Grænland
SveitarfélagSermersooq
Flatarmál
 • Samtals49 km2
Hæð yfir sjávarmáli
5 m
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals19.872
TímabeltiUTC−02:00
 • SumartímiUTC−01:00
Póstnúmer
3900, 3905
Vefsíðasermersooq.gl

Nuuk (danska Godthåb, stundum nefndur Góðvon á íslensku) er höfuðborg Grænlands. Nuuk er hluti af sveitarfélaginu Sermersooq og íbúafjöldi er um 19.872 (2024) eða um þriðjungur íbúa Grænlands. Heimastjórn Grænlands, þing og háskóli hafa aðsetur í Nuuk. Hið opinbera nafn bæjarins, Nuuk þýðir „tangi“ á grænlensku. Nafnið varð opinbert þegar Grænland fékk heimastjórn árið 1979.

Nuuk stendur við Nuup Kangerlua-fjörð á suðvesturströnd Grænlands, á tanga þar sem tveir djúpir firðir skerast inn í landið. Má segja að bærinn skiptist í tvennt, annars vegar eldri hluta sem nefndur er "Koloniehavn" og eru þar aðallega byggingar frá 18. og 19. öld og hins vegar byggingar sem eru aðallega frá seinni hluta 20. aldar, meðal annars stór fjölbýlishús.

Aqqusinersuaq, aðalgatan í Nuuk

Bærinn Nuuk hefur vaxið hratt. Um 1950 var íbúafjöldi einungis um 1.000 manns og hefur hinn hraði vöxtur leitt til margvíslegra félagslegra vandamála.

Atvinnulífið í Nuuk einkennist af fiskvinnslu, stjórnsýslu og ferðaþjónustu. Höfnin er oftast opin allt árið og við bæinn er einnig alþjóðlegur flugvöllur.

Það var trúboðinn Hans Egede sem stofnaði Godthåb sem trúboðsstöð og verslunaraðsetur árið 1728 í umboði Danakonungs. Bærinn stendur þar sem á tímum norrænna manna á Grænlandi var nefnt Vestribyggð og er enn mikið af leifum þess tíma að finna í grenndinni.

Buksefjord-virkjunin veitir Nuuk rafmagn með raflínu sem spannar 5,4 kílómetra.


From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Nelliwinne