Sweetener | ||||
---|---|---|---|---|
![]() | ||||
Breiðskífa eftir | ||||
Gefin út | 17. ágúst 2018 | |||
Tekin upp | Júlí 2016 – maí 2018[1][2] | |||
Hljóðver |
| |||
Stefna | ||||
Lengd | 47:25 | |||
Útgefandi | Republic | |||
Stjórn |
| |||
Tímaröð – Ariana Grande | ||||
| ||||
Smáskífur af Sweetener | ||||
|
Sweetener er fjórða breiðskífa bandarísku söngkonunnar Ariana Grande. Platan var gefin út 17. ágúst 2018 í gegnum Republic Records. Breiðskífan var sú fyrsta þar sem Grande var meðhöfundur allra laganna, að undanteknu fyrsta laginu sem er bútur af ábreiðu. Upptökustjórn var í umsjón Pharrell Williams, Max Martin og annarra þekktra framleiðenda.[3] Á plötunni kemur Williams einnig fram ásamt Nicki Minaj og Missy Elliott.
Lög plötunnar fjalla um rómantík, nánd, óheilbrigð sambönd, kvenleika, kvíða og þrautseigju. Stefnur hennar flokkast sem popp, R&B og trapp, að auki inniheldur hún hluta af hús, fönk, neó sál og hipphopp. Þrjár smáskífur voru gefnar út af plötunni sem allar komust í topp tuttugu á Billboard Hot 100 listanum. Sweetener var þriðja plata Grande til að ná fyrsta sæti á Billboard 200 í útgáfuviku, og var hún viðurkennd sem platínu plata af Recording Industry Association of America.[4]